Um Pumping Iron

Við byggjum styrk – ekki bara vöðva, heldur samfélag. Pumping Iron er ekki bara líkamsræktarstöð – það er heimili fyrir alla sem vilja bæta líkamlega og andlega heilsu sína í jákvæðu og hvetjandi umhverfi.

Sagan

Sagan á bakvið Pumping Iron

Pumping Iron var stofnað af hópi fólks sem hafði brennandi áhuga á líkamsrækt og heilbrigðu líferni – en líka þörf fyrir eitthvað meira. Stað þar sem fólk gæti æft, vaxið og fundið stuðning. Ekki bara líkamsræktarstöð, heldur heimili fyrir þá sem vilja bæta sjálfan sig, andlega og líkamlega.

BYRJAÐU

Skráðu þig í ókeypis prufuáskrift

Skráðu þig í ókeypis prufuáskrift, við erum viss um að þú munt finna eitthvað sem þér líkar. Það er vinalegt umhverfi og afslappað andrúmsloft á Pumping Iron þar sem þú færð persónulega þjónustu.

Hjá okkur hefur þú forgang. Skráðu þig núna.

GILDI

Kjarnagildin sem við trúum á

Ástríða fyrir framförum

Við trúum því að allir geti bætt sig – sama hvar þeir eru staddir í sinni ferð. Við fögnum framförum, stórum sem smáum.

Heilbrigt hugarfar

Líkamsrækt snýst ekki aðeins um vöðva, heldur líka andlega vellíðan. Við leggjum áherslu á jafnvægi – bæði líkama og huga.

Virðing og samfélag

Við bjóðum alla velkomna. Það skiptir ekki máli hvort þú sért byrjandi eða atvinnumaður – hér færðu, stuðning og jákvæða orku.

Hreinlæti og fagmennska

Við tryggjum hreina og örugga æfingaaðstöðu með fyrsta flokks þjónustu og faglegri nálgun í öllu sem við gerum.

REGLUR

REGLUR OG REGLUGERÐ

1. Gættu að hreinlæti þínu
2. Skilaðu lóðum og öðrum æfingatólum aftur á sinn stað
3. Æfðu í fötum og skóm. (en sleppa skóm í bardagalistum)
4. Vinsamlegast stimplið ykkur inn við komu
5. Af öryggis ástæðum notið klemmur á stangirnar
6. Vinsamlegast notið handklæði á æfingu (þeir sem þurfa)
7. Engin ábyrgð er tekin á skóm og fatnaði
8. Ef börn meiðast í tækjasal er það á ábyrgð foreldra
9. Kort og vörur eru ekki endurgreidd

ÞJÁLFUN

AF HVERJU EINKA ÞJÁLFUN?

Undir leiðsögn einkaþjálfara nýtur þú sérþekkingar og persónulega aðhald við þjálfun. Einkaþjálfun er fyrir alla sem vilja komast í betra form. Einkaþjálfari setur með þér markmið og hjálpar þér að fylgja þeim hratt eftir í tækjasal. Einnig með matardagbók og fræðslu.

Vitnisburður

Það sem ástkærir viðskiptavinir okkar segja

INSTAGRAM

follow on